kaffihús?Stellurnar

Hæ sætu stelpur :)
Eigum við ekki að reyna að halda við venjuna og kíkja á kaffihús á fimmtudaginn ??:)

Heimþrá!!!Stellurnar


Missing you

Ég bara varð að henda einni færslu hérna inn! Fékk allt í einu í dag MJÖG mikla heimþrá og sakna ykkar allra alveg óheyrilega mikið.
Ég er alvarlega að íhuga það að setjast á Strikið í svefnpoka með tóma dollu fyrir framan mig, spila á munnhörpu og athuga hvort ég fái ekki nógu mikinn styrk út úr því til að kíkja á ykkur elskurnar mínar heima!!! Koss

Annars er allt gott að frétta héðan, veðrið fínt og ekki kvartar maður út af því þar sem það er yfirleitt komið niður fyrir 10 stiga hita á Íslandi í september...þó ég hafi heyrt að það sé bara búið að vera gott veður undanfarið hjá ykkur! Sem er jákvætt að sjálfsögðu Glottandi

Jæja kominn háttatími og ég ætla að fara að pilla mér upp í rúmið mitt. Alltaf gaman að kíkja hingað og sjá af hverju ég er að missa...vá það er erfitt að sitja einhversstaðar bara í úglöndum og geta ekki mætt á kaffihús eða á Stelludjamm Gráta.

En nóg komið af væli og tepruskap! Eigið góða viku framundan krúttin mín og við sjáumst svo vonandi bráðlega...annars var ég að heyra að Icelandair vildi styrkja fallegar og skemmtilegar stelpur sem vildu heimsækja Köben í október, finnst þið ættuð að athuga þetta alvarlega Glottandi.

Þúsund kossar og faðmlög og allt bara til ykkar allra!!!
*SMOOCH*SMOOCH*, ykkar vinkona Arndís

laugardagurinn!!Stellurnar

jæja er ekki kominn tími á stelludjamm eða hvað???!!!
Mamma og pabbi eru að fara til London á laugardaginn svo að ég ætlaði að bjóða ykkur sætu skvísunum í heimsókn...drekka smá hvítvín og fara í singstar, hvernig hljómar það?? Steinunn verður í bænum, sem er auðvitað mikið jeij :) Hera verður því miður í Vestmannaeyjum eitthvað að handboltalúðast svo að hún kemst ekki :( en hvað með ykkur hinar? stemmó?

Ace

Og þá byrjar ballið...Stellurnar

Kominn tími til að ég skrifi inn á þessa síðu! Glottandi Ég kom heim frá spáni í gær og mætti núna mjög samviskusamlega í fyrsta tímann (nb skólinn byrjaði á mán) en auðvitað var tímanum cancelað svo ég sit hér og blogga í staðinn!

Það var ææææði á spáni, veitti ekki af smá sól og afslöppun fyrir komandi brjálæði! Ég ætla einmitt að fara uppá nemendaskrá á eftir og skrá mig í sjálfsnám í spænskunni svo ekki minnkar álagið! Óákveðinn Hvernig líst ykkur annars á veturinn? Ég btw trúi ekki að sumarið sé búið!!!!! En við gerum gott úr þessum vetri, hópferð til Köben kannski? Ullandi 

En allavega, ég heyrði aðeins í Önnu Maríu í gær og við ætlum að stinga uppá kaffihúsaferð annað kvöld (kl 9 - varð að koma fram frá önnu! Brosandi)? ég veit að steinunn kemur í bæinn 5 en við getum þá bara farið aftur í næstu viku! Held það sé nú kominn tími til að hittast almennilega, sammála?

Endilega kommentið, við sjáumst vonandi fljótlega... og áfram með bloggið, þetta er búið að vera eitthvað voða dauft undanfarið!!! Svalur c jú, Hera

HellúúúúúúúStellurnar

Hæ sykurpúðaskvísurnar mínar!!!
Jæja þá hefur Dísa ofurskvísa yfirgefið landið :( hennar verður að sjálfsögðu sárt saknað en hún verður alltaf með okkur í anda. Það má einnig líta á björtu hliðarnar því að nú er maður kominn með gistingu í Köben....ekki slæmt Glottandi ég segi að við förum bara stelluferð einhverntíman og heimsækjum sykurpúðaparið!! verslum, djömmum og förum auuuuuðvitað í Tívolííííí!!!
Annars var ég svona að spá hvort að við ættum ekki að skella okkur á kaffihús einhverntíman í náinni framtíð, hvernig líst ykkur á það??? Ég reyndar er að fara í Berlín í fyrramálið og kem ekkert fyrr en í næstu viku, þannig að kannski stefna á...næstu viku Ullandi annars er auðvitað líka bara hægt að halda Stellupartý og djamma saman:) næst þegar ég er ein heima þá býð ég ykkur skvísunum til mín og það er örugglega ekki það langt þangað til, mamma og pabbi eru að fara til London einhverntíman í september, svo að þá verður allavegana hittingur :)


en hva segiði...kaffi??


Ace

Hvernig var svo....Stellurnar

hvernig var svo Verslunarmannahelgin hjá ykkur skvísur???
Mín var allavegana FULLKOMIN!!! vá hvað ég ætla pottþétt að gera þetta aftur!!!!
  • Mætti eyjuna kl 22:30 í hellidembu og svartamyrkri....tjaldaði í rosa brekku...sá það reyndar ekki fyrr en morguninn eftir en það skipti engu máli enda ekki miklum tíma varið í tjaldinu!!
  • Tjúttaði með Stuðmönnum og leið alveg eins og ég væri kominn inn í Með Allt á Hreinu Brosandi
  • Fékk mér djúsí pulli í pulsuskúrnum og pepsí í pepsískúrnum!! (sér sjoppa fyrir pylsur og sér fyrir gos..mjög spes)
  • Faðmaði Jónsa í Svörtum fötum þegar hann kom upp í brekku þegar hann var að syngja og hann hélt á mér í söngnum!!! (já...mar er frekar crazy)
  • dó í brekkunni (það var víst skylda)
  • Söng hástöfum í brekkusöngnum
  • Hámaði í mig lunda í tonnatali!!!
  • og var drulluskítug upp fyrir haus allan tímann Brosandi
Vá hvað var gaman....

hvernig var ykkar helgi??

Kveðja Mrs Jónsi í svörtum (Anna María)

ps..set myndina af mér og jónsa hér þegar ég hef fengið hana Glottandi

Um okkur....Stellurnar

Þetta er allt að koma...ég og Tinna erum búnar að opna okkur hér á netinu...(linkur hér uppi til vinstri), ég er enn að bíða eftir ykkur hinum að senda mér svörin ykkar...þetta er voða fyndið og skemmtilegt það sem er komið....á svo eftir að finna út úr því hvernig í #"%"% ég set inn myndir hérna án þess að þær séu á netinu??? ef e-r kann plís segja mér Skömmustulegur

en var að kveðja Arndísi og Grétar áðan, voða skrítið að þau séu bara að fara og lifa sínu lífi bara allt annars staðar, á öðru landi og allt!! en þau verða vonandi þarna ennþá eftir 2 ár þegar ég kem og tek yfir Kaupmannahöfnina!!! Hlæjandi

jams...vildi bara svo koma með nokkrar góðar myndir hérna úr eyjum...rétt til að hita upp Glottandi




Á Þjóðhátíð þar hitti ég þig............Stellurnar

Hlæjandi

Jæja, þótt síðasta færsla hafi ekki verið lengi fannst mér samt alveg kominn tími á að lesa e-ð annað sem væri kannski ekki alveg jafnvæmið, þó hún hafi verið mjög sæt og alltaf gaman að heyra svona fréttir, þá ákvað ég nú samt að skella einni inn hérna!

Mér leiðist alveg óheyrilega mikið núna í vinnunni, það eru eiginlega bara ég og Ernst hérna, allir í sumarfríi fram yfir verslunarmannahelgina svo.....ég fæ ekkert að missa sýrur á gólfið og yfir sloppinn minn þangað til þá og er bara föst hér við tölvuna á Web of Science að leita af greinum sem tengjast omega-3, MeHe, dioxin, PCB og fiskneyslu....veit þið viljið ekki heyra meira um það en ég gæti rausað um þetta í marga daga held ég! Tala af sér

En talandu um Verslunarmannahelgina þá keyptum við Óli okkur barasta miða til Eyja í gærkvöldi.....bara svona rosa spontant ákvörðun!!!! Það er alltaf best þannig ;) jáms, ákvað að láta peningaleysi ekkert á mig fá og kaupa þetta helvíti bara...þetta reddast einhvern veginn!! Ég kaupi þá bara aðeins færri skó eða nærföt í NYC ;) jáms, held að þessi ferð verði sko allra króna virði og er bara komin með smá fiðring í magann! Ég fer á föstudagskvöldið kl 21 með flugi og mæti beint í stuðið og fer svo á mánudagsmorgun heim í þynnkuna, vona bara að það verði ekki mega seinkun eins og er alltaf á öllu flugi frá Vestmannaeyjum!! Kannski ég læri svo að meta þetta andskotans krummaskuð sem ég hef hatað frá því ég spilaði handbolta þar fyrst. En jáms, ég hlakka geggjað til og allt í einu finnst mér allir vera að fara....Tinna, Ása og svo Steini og Edda og Gerður og Davíð og Eva og Anna og eflaust fleiri sem ég mun þekkja þarna í brekkunni.......Brosandi

Svo þið ykkar sem eruð ekki búnar að ákveða ykkur hvað á að gera um Versló, þá held ég að þetta sé málið!
 


Kveðja

Anna María

þrjóska.isStellurnar

Já stelpur mínar þið eigið þrjóskar vinkonur. Sumar okkar eru kannski þrjóskari en aðrar en ég held að þegar að kemur að samskiptum okkar á milli þá ættum við kannski aðeins að chilla á þrjóskunni og kyngja stoltinu, ég allavegana vildi að ég hefði gert það. Vináttan er svo ómetanleg og það er alveg ótrúlegt hvað pínku lítill misskilningur eða illa orðuð setning getur haft mikil áhrif á samband manns við einhvern sem er gjörsamlega ómissandi í lífi þínu! Ef þið talið ekki saman þá vindur misskilningurinn upp á sig og til verða vandamál sem eru bara hreinn uppspuni og eitthvað sem hin manneskjan var aldrei að meina eða gerði aldrei. Sá vægir sem vitið hefur meira...það er sko ekkert rugl!  En sem betur fer lærir maður af mistökunum og ég vona að svona mál komi aldrei upp í okkar vinahóp....well aftur anyway.

þið eruð sykurpúðarnir mínir and i love you :)

...ég má taka væmiskast svona einu sinni á ári, so bear with me ;)

Ace

BarbieStellurnar

                                                                                                                                                 



Jæja stellur, ykkur er boðið í barbie-þema-stellu-partý í nýja húsinu mínu á laugardaginnUllandi




Bleikar hárkollur, mini-pils og ofur háir hælar eru skylda...Glottandi



    

     Ég hlakka til að hitta ykkur allar!  Hver veit    nema þetta sé í síðasta
       skipti í langan tíma sem við hittumst allar, Arndís að fara til Köben og
       Dóra úti í Svíþjóð..og já við erum bara alltaf svo busy..





                                          






                          Ef einhverjar kunna að skemmta
                         sér....þá veit ég hverjar það eru...Svalur 


                                     


 Það væri fínt að fá að vita hverjar ætla að láta sjá sig...
       

         Later
                  BrynjaHlæjandi






                      
       


                                       



Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Auglýsing

Stellurnar.....

Við eru 11 svaka skutlur úr MR sem finnst fátt skemmtilegra en að hittast og borða góðan mat, drekka góð vín, slúðra pínu, drekka bjór, tjútta aðeins, drekka kokteila, hrista okkur aðeins og svo auðvitað tegra og diffra þá strákstaula sem verða á vegi okkar ;)

Klukkan

Leit

Innskráningar kubbur

Könnun

Próflokaball Háskólanna með Palla á Nasa 16. maí?

Atburðarteljari