Og ţá byrjar balliđ...Stellurnar
Kominn tími til að ég skrifi inn á þessa síðu!Það var ææææði á spáni, veitti ekki af smá sól og afslöppun fyrir komandi brjálæði! Ég ætla einmitt að fara uppá nemendaskrá á eftir og skrá mig í sjálfsnám í spænskunni svo ekki minnkar álagið!
En allavega, ég heyrði aðeins í Önnu Maríu í gær og við ætlum að stinga uppá kaffihúsaferð annað kvöld (kl 9 - varð að koma fram frá önnu!
Endilega kommentið, við sjáumst vonandi fljótlega... og áfram með bloggið, þetta er búið að vera eitthvað voða dauft undanfarið!!!
HellúúúúúúúStellurnar
Hæ sykurpúðaskvísurnar mínar!!!
Jæja þá hefur Dísa ofurskvísa yfirgefið landið :( hennar verður að sjálfsögðu sárt saknað en hún verður alltaf með okkur í anda. Það má einnig líta á björtu hliðarnar því að nú er maður kominn með gistingu í Köben....ekki slæmt
ég segi að við förum bara stelluferð einhverntíman og heimsækjum sykurpúðaparið!! verslum, djömmum og förum auuuuuðvitað í Tívolííííí!!!
Annars var ég svona að spá hvort að við ættum ekki að skella okkur á kaffihús einhverntíman í náinni framtíð, hvernig líst ykkur á það??? Ég reyndar er að fara í Berlín í fyrramálið og kem ekkert fyrr en í næstu viku, þannig að kannski stefna á...næstu viku
annars er auðvitað líka bara hægt að halda Stellupartý og djamma saman:) næst þegar ég er ein heima þá býð ég ykkur skvísunum til mín og það er örugglega ekki það langt þangað til, mamma og pabbi eru að fara til London einhverntíman í september, svo að þá verður allavegana hittingur :)
en hva segiði...kaffi??
Ace
Hvernig var svo....Stellurnar
hvernig var svo Verslunarmannahelgin hjá ykkur skvísur???Mín var allavegana FULLKOMIN!!! vá hvað ég ætla pottþétt að gera þetta aftur!!!!
- Mætti eyjuna kl 22:30 í hellidembu og svartamyrkri....tjaldaði í rosa brekku...sá það reyndar ekki fyrr en morguninn eftir en það skipti engu máli enda ekki miklum tíma varið í tjaldinu!!
- Tjúttaði með Stuðmönnum og leið alveg eins og ég væri kominn inn í Með Allt á Hreinu

- Fékk mér djúsí pulli í pulsuskúrnum og pepsí í pepsískúrnum!! (sér sjoppa fyrir pylsur og sér fyrir gos..mjög spes)
- Faðmaði Jónsa í Svörtum fötum þegar hann kom upp í brekku þegar hann var að syngja og hann hélt á mér í söngnum!!! (já...mar er frekar crazy)
- dó í brekkunni (það var víst skylda)
- Söng hástöfum í brekkusöngnum
- Hámaði í mig lunda í tonnatali!!!
- og var drulluskítug upp fyrir haus allan tímann

hvernig var ykkar helgi??
Kveðja Mrs Jónsi í svörtum (Anna María)
ps..set myndina af mér og jónsa hér þegar ég hef fengið hana
