Jćja...aftur!Stellurnar
Nú spyr ég aftur.....
Stelluhittingur næsta laugardag (6.október)?

Kveðja
Anna María

Kveðja
Anna María
Stelludjamm...Stellurnar
Eruð þið ekki sammála mér að það sé kominn tími á gott stelludjamm næstu helgi!!!?
Einhverjar hugmyndir...?
Einhverjar hugmyndir...?

Kveðja frá
djammsveltu
Önnu Maríu
Uppskriftir!Stellurnar
Hæ hó!Voruð að biðja mig um að gefa ykkur uppskriftina af tælenska kjúlla réttinum sem ég eldaði fyrir okkur í sumar (ekki þessum sterka
) og svo skelli ég líka inn hérna Brownie uppskriftinni frá því síðasta vetur....Tælenskur kjúlil með Cashew hnetum:
hráefni:
2 msk saxaður hvítlaukur
500 g kjúklingabringur (skinnlausar) skornar í munnbita
1 meðalstór laukur skorin í ræmur
1 lítil gulrót skorin í ræmur
120 g grænar baunir (svona í lengjum þið vitið) skorið í nokkuð stóra bita
1 paprika (ég set alltaf 2 eða 3) :)
1 msk fiskisósa (fæst í asíska rekkanum í betri búðum)
2 msk ostru sósa (fæst í asíska rekkanum í betri búðum - ég set alltaf nokkuð mikið meira)
1 msk sykur
95 g cashew hnetur (ca einn lítill poki)
1 vorlaukur skorinn smátt
Crispy fried dried Chilies:
2 msk olía
6 rauðir chili
Aðferð:
1. Búa til Crispy fried dried Chili fyrst með því að hita olíu á Wok pönnu á yfir meðal hita þar til hún er heit og steikja þá chiliið (sem er skorið í nokkuð stóra búta (ca 3 bútar úr einu chili) í 1-2 mínútur þar til þeir eru nokkuð crispy og kemur lykt. Taka þá svo af pönnunni og geyma þá á tíssjú til hliðar.
2. Á sömu Wok skal hita olíuna sem var eftir á pönnunni við meðal hita og steikja hvítlaukinn í 1-2 mínútur þar til kemur lykt og hann orðinn golden. Bæta þá kjúkling og steikja í um 3 mínútur eða þar til hann er steiktur. Bæta þá á pönnuna lauknum, gulrótunum, baununum og paprikunni og steikja í um 5 mínútur eða þar til grænmetið er orðið tender. Bæta þá í fiskisósunni, ostrusósunni og sykrinum (ath alls ekki sleppa sykrinum!). Steikja í 1-2 mín í viðbót og takið svo af hitanum. Hrærið svo í chiliinum og hnetunum.
3. Bera fram með vorlauk sem skraut og bragðbæti :)
Nammi namm!!!
Þetta er eitt það besta sem ég fæ!!

Blautar brownies:
Hráefni:
300 g smjör
300 g suðusúkkulaði 70%
3 1/2 dl sykur
5 eggjarauður
5 eggjahvítur
hnetur - hvernig sem þið viljið
Aðferð:
Skilja eggin
Þeyta rauður og sykur saman
Þeyta hvíturnar stífar
Bræða smjörið og setja súkkulaði út í bitum (bita og bita í einu og láta bráðna við lágan hita)
Blanda súkkulaði/smjöri þegar er bráðnað saman við rauðurnar og sykurinn og svo að síðustu hvítunum og svo setja hnetur lí út í - passa bara að þær séu vel saxaðar.
Setja í álform og passa að maka nógu miklu smjöri eða olíu svo festist ekki....vill festast mikið
Baka við 160-180°C í 30 mínútur
Bera fram með öllum berjum sem ykkur dettur í hug!!
mmmmmmmmmmm........................

Bon appatit
Anna María

